Mynd dagsins: Ófögur sjón í barnarólu á Seltjarnarnesi – „Nú er ég orðlaus“

Mynd sem birtist í Facebook-hópi íbúa á Seltjarnarnesi í gærkvöldi hefur vakið talsverða athygli. Ekki þarf að hafa mörg orð um það sem er í rólunni – það skýrir sig nokkurn veginn sjálft – en hitt er annað mál að einhver virðist hafa haft einbeittan brotavilja við verkið.

„Oft er hægt að kvarta yfir því að hundaeigendur hirði ekki upp eftir hundana sína eða að fullmikið sé um að hundar gangi lausir hér á nesinu en nú er ég orðlaus. Hér er hundaskítur í ungbarnarólu á rólóvellinum við Hofgarða,“ segir konan sem setti umrædda mynd inn.

Einhverjir efast um að þetta sé hundaskítur og spyr til dæmis einn: „Er ekki líklegra að mannvera í neyð hafi laðast að hentugu formi rólunnar?“