Mynd dagsins: „Öfgakennt illa lagt við Borgarholtsskóla“

Bíleigendur skilja vel pirringinn sem fylgir því þegar einhver er illa lagður, það getur verið að einhver sé lagður utan línu eða sé jafnvel í tveimur bílastæðum. Staðan fyrir utan Borgarholtsskóla var þó önnur og verri en sést við verslunarmiðstöðvar.

Jón Bjarni segir á Twitter: „Öfgakennt illa lagt við Borgarholtsskóla“

Ægir segir: „Í gamla daga gerði svona lið svona allavegana aftast á bílastæðinu, en samt gaman að sjá að sumt breytist seint.“

Pétur Örn tekur undir og segir: „Í FG lögðum við alltaf alveg uppvið þessa töffara svo þeir komust ekki inn í bílinn sinn“