Mynd dagsins: Nýjasta hverfið í Akur­eyra­bæ en það vantar eitt frekar mikil­vægt

Guð­mundur Egill deilir mynd af nýjasta hverfi Akur­eyrar­bæjar, Nausta- og Haga­hverfi en þar búa mörg þúsund manns.

Svo virðist hins vegar sem að Akur­eyrar­bær hafi gleymt því að koma fyrir mikil­vægri þjónustu í hverfið eins og mat­vöru­verslunum en Guð­mundur hefur merkt inn allar mat­vöru­verslanir og aðra þjónustu með grænum punktum.

„Bók­staf­lega ekkert hægt að gera í hverfinu nema á bíl,“ skrifar Guð­mundur.