Athafnamaðurinn Haraldur Ingi Þorleifsson, fyrrverandi starfsmaður Twitter og stofnandi Ueno, birti skemmtilega mynd á Twitter-síðu sinni í gær.
Eins og frægt er orðið var Haraldi sagt upp störfum hjá Twitter fyrir skemmstu og er því ekki í fastri vinnu eins og er. Hann hefur þó fjölmörg járn í eldinum og vinnur til dæmis að opnun veitingastaðar eins og fjallað hefur verið um.
Haraldur sló á létta strengi á Twitter í gær þegar hann birti skjáskot af vef Viðskiptablaðsins. „Nýja djobbið var að droppa,“ sagði Halli en fyrirsögn fréttarinnar var einmitt: „Halli hjá ríkinu til 2028.“
Nýja djobbið var að droppa. pic.twitter.com/H529edT55h
— Halli (@iamharaldur) March 29, 2023