Mynd dagsins: Ný nálgun á smit­tölur

Jón Haukur Bald­vins­son stingur upp á því að sam­fé­lags­miðlinum Twitter að Ís­landi verði með nýja nálgun í smit­tölum. Nokkuð hefur verið um það í sam­fé­laginu að fólk pirri sig á þrá­hyggju Ís­lendinga að fylgjast með smit­tölum dag­legum en slíkt er ekki venjan í ná­granna­löndum.

Upp­á­stunga Jón Hauks hljóðar þannig að við myndum telja alla þá sem eru ekki smitaðir.

„Kæra Ís­land í dag eru 99,57% þjóðarinnar ekki með Co­vid. 1674 smitaðir af 378.793,“ skrifar Jón Haukur á fal­lega mynd af firði.