Mynd dagsins að þessu sinni er frá Lækjargötu og birtist fyrst í Facebook-hópnum Gagnrýnum meirihlutann í Rvk. Á henni má sjá hvernig búið er að breyta bílastæði við Lækjargötuna og koma þar fyrir borði og stólum þar sem fólk getur til dæmis notið veitinga eða veðurblíðunnar.
„Djöfullinn er þetta geðbilað. Mig myndi ekki langa að sitja við þetta borð og matast á götunni við umferðarljósin í Lækjargötunni. Borðið sett upp á bílastæði,“ segir sá sem setti innleggið inn.
Óhætt er að segja að myndin hafi vakið athygli og sitt sýnist hverjum. Einn segir það ekki til dæmis ekki vera sérstaklega spennandi tilhugsun að borða á sama tíma og svifryk og útblástur úr bílum blæs yfir matardiskinn.