Mynd dagsins: Myndin sem Guðmundur mátti ekki birta á Facebook

Samfélagsmiðlarisinn Facebook er stundum með skrýtnar áherslur þegar kemur að því að banna hitt og þetta.

Nekt er vitanlega stranglega bönnuð á miðlinum en svo virðist sem háþróuð og eflaust fokdýr tölvukerfi Facebook, sem sjá um að greina nektarmyndir frá öðrum myndum, geti gert sín mistök.

Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson varð fyrir því óláni að Facebook-síðu fyrirtækis hans, Nebraska, var lokað fyrir fullt og allt vegna dreifingar á nekt.

Myndin sem birt var á Facebook-síðunni var sárasaklaus og innihélt hreint enga nekt – aðeins mynd af konu í sandlitaðri kápu. Guðmundur tjáði sig um þetta á Twitter og birti myndina sem gerði allt vitlaust:

„Fyrir mánuði síðan var facebook síðu Nebraska lokað vegna dreifingar okkar á nekt. Næst tóku við bönn á okkar persónulegu síðum & eftir vikur af áfrýjunum barst okkur í gær loks niðurstaða í málinu. Síðunni hefur verið lokað fyrir fullt og allt v. konu í sandlitaðri kápu = nekt.“