Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi Alþingismaður Pírata, birti skemmtilegar myndir á Twitter-síðu sinni í gær.
Góða veðrið lék við höfuðborgarbúa í gær og nutu margir veðurblíðunnar í miðborg Reykjavíkur þar sem setið var úti í sólinni í góðra vina hópi.
Töluvert hefur verið rætt um hina svokölluðu aðför að einkabílnum og fækkun bílastæða í miðborginni og ljóst að sitt sýnist hverjum um það. En fækkun bílastæða þarf ekki að vera vandamál þegar hægt er að nýta plássið fyrir fólk eins og meðfylgjandi myndir sýna sem teknar voru í miðborginni í gær.
„Þúst. Hver vill eitthvað svona í hverfið sitt? Skemmtinefnd Reykjavíkurborgar þarf rækilega að taka sig til,“ sagði Ásta Guðrún og bætti við: „Það var miklu meira líf hérna þegar þetta var bílastæði. Algjört hneyksli að búa til svona svæði fyrir fólk í staðinn.“
Þúst. Hver vill eitthvað svona í hverfið sitt? Skemmtinefnd Reykjavíkurborgar þarf rækilega að taka sig til. https://t.co/slmR1LSRIY pic.twitter.com/1XpTU9qruc
— Ásta Helgadóttir (@asta_fish) June 26, 2021