Mynd dagsins: Mikill viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli í morgun

Lögreglan á Suðurnesjum birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni í morgun og sýnir hún glöggt hversu fjölbreytt störf lögreglunnar eru.

„Eitt af mörgum verkefnum lögreglu. Hér má líta flugvél af gerðinni Boeing 777 sem að lenti á Keflavíkurflugvelli með veikan farþega nú í morgunsárið. Farþeginn þurfti á læknisaðstoð að halda og var hann fluttur til frekari aðhlynningar,“ segir í færslu lögreglunnar.

Eins og sést þarf mikinn viðbúnað í og við svona lendingar.

„Það er gott að vinna með fagmönnum bæði í heilbrigðiskerfinu og svo öllum þeim fjölmörgu aðilum sem koma að lendingu vélarinnar.“