Mynd dagsins: „Mér finnst þetta ógnvekjandi mynd“

Mynd dagsins að þessu sinni hefur birst á samfélagsmiðlum að undanförnu og sýnir teiknaða mynd af Vilhjálmi Birgissyni, forseta Starfsgreinasambandsins, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, og Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR.

Sóley Tómasdóttir, kynjafræðingur og fyrrverandi borgarfulltrúi, deildi myndinni á Twitter-síðu sinni og virðist ekkert allt of hrifin af henni.

„Mér finnst þetta ógnvekjandi mynd og í algerri andstöðu við samtakamáttinn sem verkalýðshreyfingin var stofnuð utanum. Markmið verkalýðshreyfingarinnar á að vera að tryggja fjöldanum sanngjörn kjör. Ekki mæra/hylla/dýrka forystufólk félaganna.“

Margir virðast taka undir þetta hjá Sóleyju og bendir einn á það að uppsetning myndarinnar sé sérstök. „Efling er fyrir það fyrsta aðili að SGS og svo er fáránlegt að stilla Vilhjálmi og SGS þarna upp. Hann á þá frekar að vera bara fyrir sitt 3500 manna félag. Hann er ekki starfsgreinasambanbið.“

Mjög hefur gustað um þremenningana – og er það ekki í fyrsta skipti – en eins og kunnugt er ákvað Ragnar Þór að draga framboð sitt til forseta ASÍ til baka í gær. Sólveig og Vilhjálmur sem buðu sig fram í embætti varaforseta gerðu slíkt hið sama.