Mynd dagsins: Máni ó­sáttur – „Þessi bjór­dós er víst brot á lögum“

„Þessi bjór­dós er víst brot á lögum. Endi­lega farið í ríkið, styrkið gott mál­efni og birtið mynd af því. Skulum ekki leyfa for­ræðis­hyggju­fas­istunum að hafa betur.“

Þetta segir út­varps­maðurinn Þor­kell Máni Péturs­son á Twitter-síðu sinni. Við færsluna birtir hann mynd af bjór­dós en um er að ræða nýja ís­lenska tegund, Loftur, sem fram­leidd var til minningar um Loft Gunnars­son. Það eru Ægir Brugg­hús og Mói öl­gerðar­fé­lag sem standa að fram­leiðslunni.

Loftur lést árið árið 2012 en hann var utan­garðs­maður. Eftir and­lát hans var minningar­sjóði komið á fót og hefur sjóðurinn meðal annars það hlut­verk að bæta hag úti­gangs­manna í Reykja­vík. Mun allur á­góði af sölu bjórsins renna ó­skiptur í minningar­sjóðinn.

Máni er væntan­lega að vísa til þess að bannað er að aug­lýsa á­fengi hér á landi. Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur þó lýst því yfir að hún vilji af­nema bannið enda glími ís­lenskir fram­leið­endur við ó­jafn­ræði og ó­rétt­læti þegar kemur að aug­lýsingum, til dæmis á sam­fé­lags­miðlum og í sjón­varpi.