Mynd dagsins: Magnús Geir í náttsloppnum á Alþingi

Blaðamaðurinn knái Jakob Bjarnar Grétarsson skaut létt á kollega sinn hjá RÚV, fréttamanninn Magnús Geir Eyjólfsson í gærkvöldi. Magnús var í beinni útsendingu frá Alþingi í fréttum RÚV í gærkvöldi og skartaði athyglisverðum jakka.

„Magnús Geir, af hverju ertu á náttslopp niðri á nefndasviði þingsins? Býstu við löngum fundi? Ég er reyndar hrifinn af þessum casual fréttaflutningi,“ sagði Jakob á Facebook.

Magnús er húmoristi og hafði hann gaman af gríninu frá Jakobi. „Ég er enn að þróa minn karakter í sjónvarpi. Er að vinna með þetta kósý og heimilislega vibe,“ sagði hann.

Jakobi var bent á að Magnús tæki sig bara býsna vel út í sjónvarpinu – hvort sem um sé að ræða náttslopp eða flottan jakka. „Alveg sammála. Smart og notalegt. Ég lít á sloppinn minn sem vinnugalla líka. Maður er bara óvanur þessu í sjónvarpsfréttum,“ svaraði Jakob.