Una Björk Kjerulf á mynd dagsins þar sem hún birtir ljósmynd af heldur skemmtilegu hótelherbergi í Lundúnum. Þar má sjá að baðherbergið er með glervegg þar sem sést inn í herbergið sjálft og þa geta allir í herberginu séð hverjir eru á klósettinu.
„J. Kr. Jósefs, hvaða Satans trend er það að hafa glerveggi á hótelbaðherbergjum? Við erum náin fjölskylda en engir sauna-Svíar. Má fólk skíta í friði?Þessi arkitektúr hefur gert út um sambönd!,“ skrifar Una.
„Tek við tipsum um hagstæð og vel staðsett hótel í London með baðherbergisveggjum,“ bætir hún við.
J. Kr. Jósefs, hvaða Satans trend er það að hafa glerveggi á hótelbaðherbergjum? Við erum náin fjölskylda en engir sauna-Svíar. Má fólk skíta í friði?Þessi arkitektúr hefur gert út um sambönd!
— Una Bjork Kjerulf (@UnaKjerulf) June 12, 2022
Tek við tipsum um hagstæð og vel staðsett hótel í London með baðherbergisveggjum. pic.twitter.com/rP8nAz3vvb