Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra birti skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni í dag.
Á myndinni má sjá Guðlaug Þór, ungan að árum, fyrir utan Sparisjóð Siglufjarðar þar sem hann kastar af sér vatni ofan í ræsi úti á götu. Guðlaugur Þór gengst fúslega við því að líklega um sé að ræða brot á lögreglusamþykkt.
„Aftur til fortíðar! Finnst líklegt að ég sé eini utanríkisráðherrann sem hef pissað í ræsið fyrir framan Sparisjóð Siglufjarðar. Lögfræðingar hafa bent mér á að athæfið sé skýrt brot á lögreglusamþykkt en mér til varnar bendi ég á að ég var A) 3ja ára, B) það var yfirlögregluþjónn sem fyrirskipaði athæfið (sá hinn sami og tók myndina) og C) þetta hlýtur að vera fyrnt brot.“
Guðlaugur Þór segir að hvað sem öllu þessu líður sé um skemmtilega æskuminningu að ræða. „Það var alltaf gaman á Sigló með pabba,“ segir Guðlaugur Þór í færslunni sem má sjá hér að neðan.
Aftur til fortíðar! Finnst líklegt að ég sé eini utanríkisráðherrann sem hef pissað í ræsið fyrir framan Sparisjóð...
Posted by Guðlaugur Þór Þórðarson on Þriðjudagur, 9. febrúar 2021