Mynd dagsins: Lögreglan réðst í óvenjulega björgunaraðgerð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í óvenjulega björgunaraðgerð í vikunni, en hún fékk tilkynningu um áttavilltan lunda sem var á vappi í Suðurhlíðunum.

Ekki fylgdi tilkynningunni sem lögreglan fékk hvort lundinn væri særður.

Tveir lögregluþjónar voru sendir á vettvang til að kanna málið og eftir stutta leit fannst lundinn.

„Hann var ánægður að sjá okkur og var hinn gæfasti í höndum lögreglu.“ segir í tilkynningu frá löggunni.

Lögreglan ákvað að fara með lundan til dýrahirðis í Húsdýragarðinn sem tók vel á móti honum og ætlaði að gera viðeigandi ráðstafanir.

Fram kemur að lundinn var mjög rólegur og hæst ánægður með bílferðina í lögreglubílnum.

„Sum útköll eru einfaldlega skemmtilegri en önnur og það má svo sannarlega segja um þetta útkall. Góða helgi og göngum hægt um gleðinnar dyr.“ segir tilkynningunni.