Mynd dagsins: Lög­reglan biðlar til þjófa að bíða með inn­brot vegna CO­VID-19

Mynd dagsins birti lög­reglan á Suður­nesjum á Face­book-síðu sinni í dag. Liðs­menn lög­reglunnar í lands­hlutanum hafa á síðustu dögum komið mikil­vægum til­mælum frá yfir­völdum til almennings vegna kóróna­veirunnar eða CO­VID-19 en hafa síðan einnig létt fólki lundina með því að slá á létta strengi þegar það hefur átt við. Þannig vakti mynd af lög­reglu­hundinum Buster innan um rúllur af klósett­pappír mikla kátínu þar sem sagt var að yfirvöld hefðu lagt hald á 102 salernis­rúllur í tengslum við ó­lög­lega salernis­pappírs fram­leiðslu í gömlu iðnaðarhús­næði.

Í skeyti lögreglu þar sem slegið var á létta strengi sagði: Lauslega áætlað má telja að götuvirði haldlagðra rúlla hlaupi á hundruðum og jafnvel þúsundum króna. Buster kom sterkur inn að venju.

Liðs­menn lög­reglunnar sendu nú í kvöld frá sér annað skeyti á­samt mynd. Þar segir:

„Vegna þess á­stands sem hefur myndast vegna Co­vid-19 eða Kórónu­veirunnar eins og hún er kölluð biðlar lög­reglan til þeirra sem mögu­lega ætla að brjóta af sér að hætta við allt slíkt uns annað verður tekið fram.“

Einnig minnir lög­reglan á kóróna­lausan klukku­tíma.

„Þá viljum við einnig beina því til al­mennings að reyna að hafa veiru­lausan klukku­tíma milli 20-21 í kvöld að beiðni Víðis Reynis­sonar,“ segir í skeyti lög­reglu sem endar á eftirfarandi orðsendingu:

„Við viljum þakka ykkur fyrir að sýna þessu skilning.“