Mynd dagsins: Svona getur farið fyrir þeim sem brjóta reglur um sóttkví

Mynd dagsins að þessu sinni birti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á Facebook-síðu sinni. Myndin er af einstaklingi sem braut reglur um sóttkví.

„Undanfarið hefur verið þó nokkuð um að fólk sé að brjóta sóttkví sem það á að vera í. Það kemur þá oftast í okkar hlut að ná í það og koma því í sóttvarnarhús. Eins og gefur að skilja þá er það vandasamt og tímafrekt verk. Við þurfum að huga vel að sóttvörnum, klæða okkur í hlífðargalla og fara mjög varlega í flutningum sem þessum. Þessi mynd var tekin á dögunum við sóttvarnarhúsið þegar við vorum að koma með aðila þangað.“