Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, á sinn þátt í því að Steingrímur J. Sigfússon komst á þing á sínum tíma. Sem kunnugt er tilkynnti Steingrímur í dag að hann ætlaði að láta gott heita í pólitík eftir afar langan og farsælan feril.
Logi birti skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni í kvöld sem sýnir hann og Sigmund Guðmundsson, þá unga menntaskólanema, á kosningaskrifstofu Alþýðubandalagsins ásamt Steingrími J. Segir Logi að þeir félagar hafi verið tilbúnir að leggja allt í sölurnar til að koma Steingrími á þing – og það tókst.
„Nú 37 árum síðar tilkynnir hann uppúr þurru að hann ætli að hætta. Nú líður mér svolítið eins og öll sú vinna hafi verið unnin fyrir gíg!,“ segir Logi.
Á þessari mynd erum við Sigmundur, ungir menntaskólanemar, á kosningaskrifstofu Alþýðubandalagsins með Steingrími J.,...
Posted by Logi Einarsson on Laugardagur, 31. október 2020