Mynd dagsins birti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Myndin er tekin fyrir fáeinum dögum hér á landi. Í skeyti lögreglu segir:
„Sá sem tók myndina og sendi okkar sagðist eiginlega hafa orðið kjaftstopp þegar hann sá með hvaða hætti þessi ökumaður hrúgaði hlutum í kerruna og ók með hana um bæinn. Undir það má vissulega taka enda verður þessi frágangur á farmi seint talinn til fyrirmyndar.“
Ljósmyndina má sjá hér fyrir neðan.