Mynd dagsins: Lionel Messi og Eiður Smári saman

Skemmtileg mynd sem sýnir Lionel Messi sem nýlega varð heimsmeistari í knattspyrnu ásamt hinni íslensku fótboltagoðsögn Eiði Smára Guðjónssyni var birt á facebook síðu Lemúrsins í dag.

Þar auglýsa kapparnir saman Adidas skó árið 2006 en mikið vatn hefur runnið til sjávar hjá báðum köppunum síðan þá.

Báðir eru þeir klæddir í verulegu samrými við það tímabil sem myndin er tekin á en spurningin er hvort svona víðar gallabuxur séu við það að detta í tísku aftur.