Mynd dagsins: Lilja Alfreðs nýtur lífsins í Róm

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, er stödd í Róm, höfuðborg Ítalíu, um þessar mundir þar sem hún nýtur lífsins fjarri hávaðanum á Alþingi.

Lilja birti skemmtilegar myndir af sér á Facebook-síðu sinni í dag og sýna þær að vorið er komið í þessari stórglæsilegu borg. Lilja var stödd á Feneyjartvíæringnum á dögunum og má gera ráð fyrir að hún hafi heimsótt Róm í kjölfarið.

„Loksins, loksins er latínustúdínan úr MR komin til Rómar. Ekki er laust við að fornbókmenntir Ceasars, Senecu, Tacitusar og Cícerós lifni við í þessari stórkostlegu borg!“

Mjög hefur gustað um ríkisstjórnina að undanförnu vegna útboðs ríkisins á hlutnum í Íslandsbanka. Hafa sumir gengið svo langt að segja að ríkisstjórnarsamstarfið sé í hættu og Sjálfstæðisflokknum verði mögulega sparkað úr ríkisstjórn.

Ef marka má þessa mynd hér að neðan sem Lilja birti hefur hún litlar áhyggjur af ríkisstjórnarsamstarfinu.