Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, fékk ansi hreint óvenjulega niðurstöðu á Covid-prófi í gær – að minnsta kosti ef marka má mynd sem hún birti á eigin Twitter-síðu.
„Hvað þýða þrjár línur,“ spurði borgarfulltrúinn sem sýndi mynd af venjulegu heimaprófi þar sem sjá mátti þrjú strik. Þar af voru tvö venjuleg sem yfirleitt gefa til kynna jákvæða niðurstöðu úr prófinu. Á milli þeirra var svo ein blágræn lína í viðbót. Eðli málsins samkvæmt vissi Líf ekki hvernig átti að lesa úr þessari niðurstöðu.
Notendur Twitter eru ráðagóðir og gáfu þeir borgarfulltrúanum ýmis svör, misgagnleg þó.
„Þú ert Sjálfstæðiskona. Blá lína og allt,“ sagði einn. „Er þetta ekki eins og Happaþrennan? Þrjú eins og þú hefur unnið. Þarft að skanna QR kóðann til að sjá hve háan vinning þú fékkst,“ bætir svo ein við.
„Þú ert með Covid og líka ólétt,“ sagði almannatengillinn Kolbeinn Marteinsson og sló á létta strengi. Dilja Ámundadóttir Zoega, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, er á því að um nýtt afbrigði sé að ræða. „Þú hefur verið greind með Covid20 - nýtt level.“
Hvað þýða þrjár línur? pic.twitter.com/21pcy87Lcu
— Líf Magneudóttir (@lifmagn) February 24, 2022