Mynd dagsins: Lektor í Háskóla Íslands vekur athygli

Fata­hönnuðurinn Guð­mundur Jörunds­son er undrandi á út­liti Már Wolf­gang Mixa, lektors í við­skipta­fræði við Há­skóla Ís­lands en hann ver gestur Reykja­vík síð­degis í gær.

Már mætti í hettu­peysu með gráu lokkana flags­andi um og segir Guð­mundur hann lítur út eins og aðals­söngvarinn í elektrónískri hljóm­sveit.

„Af­hverju lítur lektor í við­­skipta­­fræði við Há­­skóla Ís­lands bara út eins og hann sé búinn að vera front­­maður í mjög success­ful elektrónísku bandi s.l. 27 ár og enginn hefur sagt mér frá því?“ skrifar Guð­mundur.

Í at­huga­semdum má finna nokkra sem benda á að nafnið hans Már Wolf­gang Mixa hljómar einnig einnig eins og lista­manns­nafn.

Már ræddi mögu­legar fjár­festinga­leiðri í Reykja­vík síð­degis í gær og sagði þar að það væri sniðugt að byrja á því að greiða niður skuldir, áður en farið verði í aðrar og jafn­vel á­hættu­samar fjár­festingar.