Mynd dagsins: Leit enginn til vinstri?

„Dá­lítið fyndið þegar það þarf bara að líta að­eins til vinstri til þess að sjá eldra veggja­krot. Kannski var það hins vegar um­beðið?“

Þetta segir Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, á Face­book-síðu sinni.

Um fátt hefur verið meira rætt undan­farinn sólar­hring en stjórnar­skrár­málið – nema ef vera skyldi CO­VID-19 – en eins og kunnugt er fjar­lægðu vaskir menn á­letrun sem búið var að setja á vegg skammt frá sjávar­út­vegs­ráðu­neytinu við Skúla­götu. Á veggnum stóð: „Hvar er nýja stjórnar­skráin?“

Vísir greindi frá því í dag að rekstrar­fé­lagi stjórnar­ráðsins hefði borist á­bending frá at­vinnu­vega- og ný­sköpunar­ráðu­neytinu um á­letrunina sem máluð var um helgina.

Viktor Jens Sig­fús­son, fram­kvæmda­stjóri Um­bru, rekstrar­fé­lags stjórnar­ráðsins, sagði við Vísi að sjávar­út­vegs­húsið við Skúla­götu hafi komið í um­sjón Um­bru í sumar. Þá var gerður samningur um að sjá um hús­næðið og lóðina í kring. Í samningum hafi falist að „þrífa allt ó­um­beðið veggja­krot“ eins og það er orðað í frétt Vísis.

„Og þetta var fyrsta veggja­krotið sem kom eftir að við tókum við,“ sagði Viktor. Björn Leví gefur ekki mikið fyrir þessar skýringar, enda má sjá ó­grynni af veggja­kroti á öðrum vegg á þessari sömu lóð eins og myndin hér að neðan ber með sér.

"fyrsta veggjakrotið sem kom eftir að við tókum við" -...

Posted by Björn Leví Gunnarsson on Þriðjudagur, 13. október 2020