Mynd dagsins að þessu sinni birtist á Facebook-síðu Thelmu Bjarkar Brynjólfsdóttur, leikskólastarfsmanni hjá Reykjavíkurborg.
Thelma heldur þar á glaðningi frá borginni sem hún fékk fyrir „ómetanlegt framlag við krefjandi og flóknar aðstæður“ eins og það er orðað í skilaboðum til leikskólastarfsmanna. Um er að ræða páskaegg af minnstu mögulegu stærð.
Fréttablaðið greindi fyrst frá þessu.
Þar er haft eftir Thelmu að Reykjavíkurborg sendi starfsfólki sínu kaldar kveðjur með þessari páskagjöf. Hún tekur það þó fram að leikskólastjórinn á leikskólanum þar sem hún vinnur hafi verið svo góður að gefa starfsfólki sínu stórt páskaegg sjálfur í síðustu viku.
Færsla Thelmu hefur vakið mikla athygli og hafa margir gagnrýnt gjöfina, enda ákaflega lítilfjörleg verður að segjast.
„Ómetanlegt framlag” er virði ódýrasta páskaeggsins. Þetta er bara móðgun,“ segir í einni athugasemdinni.