Mynd dagsins: Kúnnarnir íslenskir en allar merkingar á ensku

Kristinn R. Ólafsson, útvarpsmaður, þýðandi og fleira, birti meðfylgjandi mynd í Facebook-hópnum Málspjall sem nýtur töluverðra vinsælda meðal þeirra sem vilja veg íslenskunnar sem mestan.

„Ég tók þessa mynd í fríhafnarversluninni í Leifsstöð í gærkvöld. Þar eru allar merkingar bara á ensku. Ég spurði starfsmann hverju sætti en hann gat auðvitað fá svör gefið enda ræður hann því ekki. En fræddi mig þó um að líklega væru ríflega 90 prósent þeirra sem keyptu sér eitthvað í búðinni Íslendingar. En íslenskan samt hvergi sjáanleg,“ segir Kristinn og klórar sér í kollinum.