Mynd dagsins: Köttur Helgu Völu slær í gegn – „Nei. Hvað er að frétta?“

Óhætt er að segja að mynd af heimilisketti þingkonunnar Helgu Völu Helgadóttur hafi slegið í gegn á Facebook.

Myndina birti Helga Vala í gærkvöldi en þar má sjá köttinn liggja á bakinu í stofusófanum og horfa á körfubolta eins og alvöru sófakartafla.

„Við erum bara að tjilla og horfa á körfubolta,“ sagði Helga Vala við myndina sem fékk marga til að skella upp úr.

„Ótrúleg stelling á þessum gæja,“ sagði einn vina Helgu Völu. „Frábær mynd. Fer greinilega vel um ykkur,“ sagði annar á meðan sá þriðji sagði: „Nei. Hvað er að frétta?“