Mynd dagsins: Kostaði 68.500 í byrjun árs – Sjáðu hvað hann kostar í dag

„Það er verulega niðurlægjandi fyrir fólkið í landinu að búa við stjórnvöld sem hafa dálæti á krónunni – handónýtum gjaldmiðli,“ segir við mynd sem Grindvíkingurinn Björn Birgisson birti á Facebook-síðu sinni.

Myndin, sem hefur vakið nokkra athygli, sýnir 500 evru seðil sem hefur hækkað nokkuð í verði ef litið er til þróunar íslensku krónunnar á þessu ári.

Við myndina stendur: „Svona seðill kostaði um 68.500 krónur í ársbyrjun. Hann kostar núna um 83.500 krónur.“