Mynd dagsins: Kol­beinn brjálaður – „And­skotist til að passa ykkur“

Mynd dagsins að þessu sinni sýnir eina lit­ríkustu teikni­mynda­per­sónuna, sjálfan Kol­bein kaftein úr ævin­týrunum um Tinna. Þeir sem þekkja Tinna­bækurnar vita að Kol­beinn er blóð­heitur og stundum býsna harður í horn að taka.

Það var Ó­lína Þor­varðar­dóttir, fyrr­verandi þing­kona, sem deildi myndinni á Face­book-síðu sinni en þar má sjá Kol­bein – með hnefann á lofti – senda skila­boð á kjarn­yrtri ís­lensku.

Ætla má að til­efnið sé ó­hóf­leg út­breiðsla kórónu­veirunnar í sam­fé­laginu en eins og kunnugt er greindust 99 smit í gær. Af­leiðingarnar eru þær að á­kveðið hefur verið að grípa til enn harðari að­gerða en kynntar voru um helgina.

Í skila­boðunum segir Kol­beinn kafteinn:

„And­skotist til að passa ykkur, halda fjar­lægð og vera heima ef þið eruð lasin. Þvoið ykkur um hendur, sprittið og notið grímur ef þarf, flón og vit­leysingar!!!“

Góður!

Posted by Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir on Þriðjudagur, 6. október 2020