Mynd dagsins: „Katta­fram­boðið á Akur­eyri er mögu­lega besta flipp­fram­boðið í Ís­lands­sögunni“

Hall­dór Auðar Svans­son, vara­þing­maður Pírata, birti skemmti­lega mynd af Katta­fram­boðinu á Akur­eyri það verður að segjast að skjaldar­merki fram­boðsins ber af.

Snorri Ás­munds­son lista­maður fer fyrir fram­boðinu en sam­kvæmt pistli hans á Akur­eyri.net er hug­myndin er að kettir bjóði sig fram í bæjar­stjórn Akur­eyrar og mjálmi í burt haturs­fulla bæjar­full­trúa.

„Kettir hafa vissu­lega ekki kenni­tölu eins og mann­fólk, en hug­myndin er að eig­endur kattanna láni þeim kenni­tölu sína til að þeir verði kjör­gengir. Akur­eyri er sann­kallaður katta­bær og þeir ættu að vera stolt Akur­eyringa. Katta­lífið á Akur­eyri er afar heillandi og það fylgir því að ganga um götur bæjarins að rekast á ketti að leik.

Katta­fram­boðið leggur einnig til að lógói bæjarins verði breytt og skipt út fasískum erni í glað­lyndan kött,“ skrifar Snorri.

Hér má sjá Snorra og nýja merki Akur­eyrar­bæjar.