Mynd dagsins: Katrín í óvenjulegum erindagjörðum

Verkefni ráðherra geta verið ansi fjölbreytt og fékk Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eitt slíkt inn á sitt borð í gær.

Þá sló Katrín máli á hæsta tré landsins í dag og reyndist það vera 30,15 metrar á hæð. Katrínu var boðið til athafnar í skóginum á Kirkjubæjarklaustri í gær þar sem hæsta tré landsins var útnefnt tré ársins af Skógræktarfélagi Íslands.

Frá þessu er sagt á vef Skógræktarinnar og birtist myndin af Katrínu, sem Pétur Halldórsson tók, með fréttinni.

Björn Traustason, fagstjóri landupplýsinga á rannsóknasviði Skógræktarinnar, leiðbeindi Katrínu við þríhyrningsmælingu á trénu sem er sitkagreni gróðursett af fjölskyldunni á Klaustri árið 1949.

Mælingu Katrínar var bætt við röð mælinga sem Björn hafði þegar gert á trénu til að fá sem nákvæmasta tölu. Niðurstaðan er sú að fyrsta tréð hefur nú náð þrjátíu metra hæð á Íslandi frá því fyrir ísöld þegar hér uxu stórvaxnar trjátegundir sem náð gátu margra tuga metra hæð.

Í ávarpi sínu við tréð á Klaustri talaði Katrín Jakobsdóttir um mikilvægi skóga og skógræktar. Hún nefndi nýsamþykkta landsáætlun um landgræðslu og skógrækt, Land og líf, og þann mikilvæga þátt sem áætlunin væri í markmiðum Íslendinga í loftslagsmálum. Þar fyrir utan ætti hún persónulega kærar minningar frá þessum stað frá því þegar hún sýndi tilvonandi manni sínum skóginn snemma í sambandi þeirra.

Fjöldi fólks, um áttatíu manns, var viðstaddur í dag á Klaustri þegar tré ársins var útnefnt, heimafólk og fulltrúar eigenda skógarins, Skógræktarinnar og Skógræktarfélags Íslands. Auk forsætisráðherra fluttu ávörp Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og Hafberg Þórisson í Lambhaga sem var bakhjarl viðburðarins.