Mynd dagsins: Karl Ágúst leitar að nýju stjórnar­skránni

Ó­lík­legt þykir að leikarinn, leik­stjórinn og rit­höfundurinn Karl Ágúst Úlfs­son hafi fundið nýju stjórnar­skrána í dag. Karl Ágúst birti skemmti­lega mynd af sér á Face­book og varpaði eftir­farandi spurningu fram:

„#hvar getur nýja stjórnar­skráin verið? Hjálpumst öll að við að leita. Hún hlýtur að finnast á endanum, annað væri fá­rán­legt,“ segir Karl Ágúst en á myndinni má sjá hann svipast um eftir stjórnar­skránni undir húddinu á bif­reið sinni.

Al­menningur leitar nú að nýju stjórnar­skránni undir myllu­merkinu #Hvar? Með her­ferðinni er vakin at­hygli á því að í októ­ber eru átta ár frá því að þjóðin greiddi at­kvæði um nýja stjórnar­skrá í þjóðar­at­kvæða­greiðslu og í nóvember verður ára­tugur frá því að blásið var til þúsund manna þjóð­fundar um stjórnar­skrár­mál í að­draganda þess að stjórn­laga­ráð tók til starfa.

Fólk tekur þátt í her­ferðinni með því að deila myndum af sér á sam­fé­lags­miðlum þar sem það leitar að stjórnar­skránni meðal annars í rusla­fötum, innan um runna og á bak við hús­gögn á heimilinu. Er þetta gert undir myllu­merkinu #Hvar? Um 19 þúsund hafa skrifað undir á­skorun til Al­þingis, á vegum Sam­taka kvenna um nýja stjórnar­skrá, um lög­festingu nýrrar stjórnar­skrár.