Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólameistari á Laugum og einn skemmtilegasti íþróttalýsandi landsins, birti afar áhugaverða mynd á Twitter-síðu sinni í gær.
„Gunnhildur kona mín er að vinna með það að öll tré geta orðið jólatré. Við restin af fjölskyldunni erum þeirrar skoðunar að það komast ekki allir á Ólympíuleika. Þetta tré kemst ekki einu sinni á héraðsmót,“ segir Sigurbjörn og birtir mynd af trénu.
Óhætt er að segja að tréð hafi slegið í gegn hjá fylgjendum Sigurbjörns og hefur myndin fengið hátt í 800 „læk“. Margir eru á því að þetta jólatré hafi alla burði til að ná langt, ef svo má segja.
„Þetta er aaalgjört fashion jólatré! Magurt, hátt og skúlptúrískt, skrautið mun njóta sín vel,“ segir einn og óskar eftir mynd af trénu eftir að það hefur verið skreytt. Annar er þó ekki á því að tréð eigi sér mikla von sem jólatré og segir:
„Ef þetta er ekki spurningin um að vinna, heldur vera með, gengur þetta fínt upp.“
Gunnhildur kona mín er að vinna með það að öll tré geta orðið jólatré. Við restin af fjölskyldunni erum þeirrar skoðunar að það komast ekki allir á Ólympíuleika. Þetta tré kemst ekki einu sinni á héraðsmót.... pic.twitter.com/a4UrsbhpkI
— Sigurbjörn Árni Arngrímsson (@sarngrim1) December 19, 2021