Mynd dagsins: „Jólatré“ í Søstrene Grene - „Gæsalappirnar eru það besta“

Mynd af litlum jólatrjám hefur vakið mikla athygli á Twitter. Bríet nokkur, sem virðist vera starfsmaður verslunarinnar Søstrene Grene í Smáralind, birti mynd af jólatrjánum sem eru til sölu í versluninni. Jólatréin eru tiltölulega hefðbundin í laginu en það er eitthvað við þau sem fær fólk til að brosa.

Margir gera gys að gæsalöppunum: „Gæsalappirnar eru það besta,“ segir Jón.

„Hvar er stjarnan á toppinn?,“ spyr Stefán Þór. Bríet svaraði: „Hún býr innra með þér.“

Katrín hrósar verðinu:

Guðný nokkur segir að hún hafi leitað og leitað:

„OMG er búin að leita að þessu bæði í Kringlunni og Smáralind árangurslaust! Svona án gríns ég og vinkona mín gefum hvorri annarri alltaf eitthvað skrítið jólaskraut. Er þetta við kassann??“

Bríet segir að þau fáist við kassann í versluninni í Smáralind. „Komdu fagnandi!“