Mynd dagsins: Jóhannes veiddi lagarfljótsorminn

Mynd dagsins að þessu sinni er af ofvaxinni skepnu sem veiddist í Lagarfljóti á dögunum. Það þekkja allir söguna um Lagarfljótsorminn og er engu líkara en að skepnan sem veiddist sé afkomandi skrímslisins sem þjóðsögur segja að haldi til í fljótinu.

„Lagarfljótsormurinn lenti í neti hjá mér um daginn. Ég var við klakveiðar í Lagarfljóti í byrjun októbermánaðar þegar ofurskepna gekk í eitt netið sem ég var að vakta,“ segir á Facebook-síðunni Laxfiskar sem Jóhannes Sturlaugsson heldur úti.

„Netin lagði ég til að afla lifandi laxa í því skyni að ala undan þeim seiði vegna fiskræktarrannsóknar sem ég er að vinna að í hliðarám Lagarfljóts fyrir hönd Veiðifélags Lagarfljóts. Ofurskepnan gekk í netið með þeim látum að margir metrar af blýþungu netinu tókust ítrekað á loft. Þegar nær dró sá ég að ofurskepnan reyndist vera leginn lax í yfirstærð; lax sem er líklega stærsti lax sem veiðst hefur hérlendis úr fiskræktarsleppingu,“ segir Jóhannes meðal annars en laxinn var 102 sentímetra langur.

„Sama dag og ég veiddi laxatröllið þá keyrði ég hann með viðhöfn í tanki á þriðja hundrað kílómetra í seiðaeldisstöðina að Laxamýri Í Aðaldal þar sem svil hans eru þegar farin að frjóvga hrogn hrygna úr Lagarfljóti. Til stendur af minni hálfu að heimsækja þennan merkislax að Laxamýri innan tíðar og við þá endurfundi verður þyngd hans mæld,“ segir Jóhannes en myndina af „lagarfljótsorminum“ má sjá í færslunni hér að neðan.