Mynd dagsins: Jóhanna Vig­dís heims­fræg á Twitter – Sérðu eitt­hvað at­huga­vert?

Ó­hætt er að segja að skjá­skot úr kvöld­fréttum RÚV árið 2010 séu að koma Jóhönnu Vig­dísi Hjalta­dóttur, frétta­konu á RÚV, ræki­lega á kortið – að minnsta kosti á Twitter.

Um sak­leysis­lega, en um leið spaugi­lega, mynd er að ræða og sýnir hún Jóhönnu lesa fréttir, að því er virðist á meðan á gosinu í Eyja­fjalla­jökli stóð. Í bak­grunni sést mynd af gjósku­spúandi eld­fjallinu en svo vill til að beint undir myndinni er kaffi­bolli Jóhönnu.

Færslan sem komið hefur Jóhönnu á kortið er ein­föld og hljómar svona: „Hversu heitt er eigin­lega kaffið hennar?“

Færslan var sett inn í gær af manni að nafni Neil McDonald og hefur hún slegið ræki­lega í gegn. Þannig hafa tæp­lega 30 þúsund Twitter-not­endur sett hjarta við myndina og færsluna sem gefur til kynna að þeim líkar inni­haldið. Þá hafa yfir 100 at­huga­semdir verið skrifaðar.

Myndina má sjá hér að neðan: