Mynd dagsins: Jóhanna í hjólastól

Jóhanna Sigurðardóttir var einn vinsælasti ráðherrann í þeim ríkisstjórnum sem hún sat í.

Birkir Stefánsson birtir mynd dagsins að þessu sinni. Hún er úr ljósmyndasafni Reykjavíkur og er frá árinu 1992.

Þar má sjá Jóhönnu Sigurðardóttur í hjólastól. Hún var á þessum tíma félagsmálaráðherra og var að kynna sér ferli-og aðgöngumál fatlaðra.