Óhætt er að segja að mynd ein sem birtist í Facebook-hópnum Hundasamfélagið hafi vakið athygli og kátínu margra.
Kona sem birti umrædda mynd, Jakobína að nafni, segir frá því að hún hafi týnt öðru airpodsinu-sínu fyrir helgi en um er að ræða þráðlaus heyrnartól sem tiltölulega lítið fer fyrir. Það getur því verið auðvelt að týna þeim ef ekki er gengið frá þeim strax eftir notkun.
Hundar eru forvitnar skepnur og eiga það til að naga ýmislegt – og jafnvel gleypa – það sem þeir komast. Það virðist einmitt hafa gerst hjá Jakobínu en hún fann Airpodsið þegar hún fór út að labba með hund sinn, Þoku, í gær.
Myndin vakti mikla athygli og þegar þetta er skrifað hafa hátt í 600 manns sett „læk“ við myndina sem má sjá í skjáskoti hér að neðan.