„Stundum verður Facebook feedið manns svo dramatískt að maður fær hjartslátt,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur á Facebook-síðu sinni.
Þar birtir hann skjáskot af Facebook-síðu sinni þar sem má annars vegar sjá nígeríska hælisleitandann Uhunoma Osayomore fagna afmæli sínu og hins vegar auglýsingu frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins.
„Þarna er Uhunoma að fagna 22 ára afmælinu sínu, fyrsta afmælinu sínu í átta ár sem hann fagnar með fólki sem vill honum vel, og þarna með fyrstu afmæliskökuna sem hann hefur á ævinni fengið. Og svo strax fyrir neðan er konan sem vill senda hann aftur út í helvítið sem hann slapp frá að biðja um gott gengi í prófkjöri. Íslenskur hraunveruleiki. Hard Core,“ segir Hallgrímur sem barist hefur fyrir því ásamt góðum hópi fólks að Uhunoma verði veitt landvistarleyfi.
Hefur hópurinn meðal annars staðið fyrir undirskriftasöfnun þar sem íslensk yfirvöld eru hvött til að leyfa Uhunoma að dvelja á íslandi. Hægt er að skrifa undir listann hér.
Stundum verður Facebook feedið manns svo dramatískt að maður fær hjartslátt. Þarna er Uhunoma að fagna 22 ára afmælinu...
Posted by Hallgrímur Helgason on Fimmtudagur, 6. maí 2021