Mynd dagsins: Íslandsmet í viðsnúningi hjá Þórólfi?

Alls greindust 149 kórónuveirusmit innanlands í gær og hafa ekki fleiri greinst með veiruna á einum degi síðan í lok nóvember. Þetta gerist aðeins fjórum dögum eftir að aðeins 80 greindust með veiruna.

Eins og dæmin hafa sýnt er kórónuveiran óútreiknanleg og ekki þarf mikið til til að hópsýkingar skjóti rótum. Á Twitter í dag var bent á tvær fréttir Vísis sem unnar voru með fjögurra daga millibili en í bæði skiptin var rætt við Þórólf um stöðuna í faraldrinum.

Eftir að 80 smit höfðu greinst sagði Þórólfur að heilt yfir væri faraldurinn á niðurleið hér á landi. „Kúrfan undanfarið hefur verið niður á við. Fjöldinn hefur verið að fækka hægt og bítandi og gott að sjá þessar tölur í gær,“ sagði Þórólfur í fréttinni á sunnudag.

Í dag var hann aftur til viðtals um stöðuna og þá var komið annað hljóð í strokkinn. „Auðvitað þarf maður alltaf að spyrja sig hvort að þróunin sé að snúa við og hvort við séum að fara upp á við frekar en niður á við.“

Þá virtist Þórólfur ýja að því að hertari aðgerðir innanlands gætu tekið gildi eins og í Danmörku. „Mér finnst að við þurfum að velta alvarlega fyrir okkur hvað við getum gert til að virkilega ná smitunum niður það er það sem skiptir máli,“ sagði Þórólfur við Vísi í dag.

Hér má sjá færslu á Twitter þar sem bent var á þetta: