Þó að óbyggðir Íslands séu býsna víðáttumiklar bliknar stærð landsins í samanburði við Texas, næstfjölmennasta ríki Bandaríkjanna.
Meðfylgjandi mynd birtist á vefnum Mylifeelsewhere.com en þar eru bornar saman stærðir hinna ýmsu landa og ríkja. Á meðfylgjandi mynd er búið að setja Ísland inn á kort af Texas sem er töluvert stærra en Ísland eins og sjá má.
Ísland er 103 þúsund ferkílómetrar en Texas 678 þúsund ferkílómetrar, rúmlega fimm sinnum stærra. Þó að Texas sé býsna víðáttumikið á það ekki séns í Alaska sem er stærsta ríki Bandaríkjanna, eða rúmlega 1,7 milljónir ferkílómetra.