Tístverjinn Arnór Bogason varð heldur betur vitni að ófagurri sjón á Tryggvagötu í gær. Hann birti mynd á Twitter síðu sinni í gær.
„Nú þekki ég ekki reglur nógu vel um fríðindi opinberra starfsmanna en þessum ráðherrabíl var lagt upp á gangstétt og ofan á leiðamerkingar fyrir blinda. Hvert sendi ég kvörtun?“ spurði Arnór í gær.
Þar lagði Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson, veitingamaður á Brut, orð í belg og sagði næstum alltaf bíl á þessari gangstétt. „Og enginn gerir neitt í því, nema einn stöðumælavörður sem myndi vinna fyrir kaupinu sínu og vel það ef hann þurfti aldrei að fara neitt annað.“
Arnór greinir frá því í dag að hann hafi fengið svar frá hópstjóra ráðherrabíla. Þar segir hópstjórinn að gerðar séu ríkar kröfur til bílstjóra um að fara eftir umferðarlögum, hann sé samála Arnóri að þetta sé óhæft og að hann muni eiga samtal við viðkomandi bílstjóra.
Ég sendi auðvitað kvörtun á þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og fékk svar strax næsta dag frá hópstjóra ráðherrabíla. https://t.co/f8wKyaODOn pic.twitter.com/fqA8Lneoue
— Arnór Bogason 💙💛 (@arnorb) April 20, 2022