Mynd dagsins: „Hversu stórar eru þessar lýs?“

Haukur Heiðar Leifs­son bruggari hjá Borg Brugg­húsi á mynd dagsins eða öllu heldur grín dagsins er hann deilir skjá­skoti af frétt Vísir.is um veggja­lýs.

Á myndinni má sjá Steinar Smára Mein­dýra­eyði með nokkuð stóra skamm­byssu í hendinni og spyr Haukur þar: „Hversu stórar eru þessar lýs?“ þar sem vopnið virðist lík­legra til að fella elg en lús.

Sprenging hefur orðið í út­köllum vegna veggjalúsa á ís­lenskum heimilum upp á síð­kastið og segir Steinar Smári veggja­lýs því miður orðnar mjög al­gengar hér á landi.

Myndina má sjá hér að neðan en netverjar hafa notið grínsins í dag.