Íbúar í innri Njarðvík eru undrandi þessa daganna yfir fjórhjóli sem hefur verið komið fyrir á húsþaki í bænum.
Í Facebook hópnum Íbúar í Innri Njarðvík spyr íbúi gáttaður á því af hverju það fjórhjól á þakinu og hver ber ábyrgð á þessu.
Hingað til hefur enginn gefið afgerandi svar um hvernig fjórhjólið komst á húsþakið né af hverju það er geymt þar. Mögulega er skortur á bílastæðum en hver veit, myndrænt er það engu að síður.
Ljósmynd/skjáskot