Mynd dagsins birti Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ötull baráttumaður gegn spilakössum, á heimasíðu sinni.
„Á hádegi í dag (þá var þessi mynd tekin) hafði Háskóli Íslands ekki látið loka spilavítum sem hann rekur undir því tælandi heiti Háspenna. Önnur mun heita Spennistöðin. Háskólahappdrættið vanvirðir þannig áskorun samtaka Áhugafólks um spilafíkn, Neytendasamtakanna, forseta ASÍ og formanns VR um að loka spilasölum og kössum á vegum happdrættisins tímabundið vegna COVID-19 veirunnar.“
Ögmundur segir að það sama gildi um aðra rekstraraðila sem standa að Íslandsspilum, það er Rauða krossinn, Landsbjörg og SÁÁ. Þessir aðilar hafi fengið samskonar áskorun.
„Einhvers staðar mun hafa verið komið upp sprittbrúsum svo spilafíklar gætu úðað sig með spritti og fyrir vikið ótrauðir haldið áfram að láta ræna sig.“
Ögmundur segir dapurlegt að ánetjast spilafíkn en það sé hins vegar sjúkdómur sem enginn þarf að skammast sín fyrir.
„Öðru máli gegnir um hina tegundina af spilafíklum, þá sem seilast ofan í vasana hjá þessu veika fólki. Þetta hlýtur að verða rætt í ríkisstjórn! Væri ekki ráð að menntamálaráðherra hringdi í rektor Háskólans, eða dugar ekkert annað en að lögreglustjóri taki það að sér? Ég legg til að byrjað verði á símtali frá sóttvarnarlækni. Einhver þarf að stöðva spilafíkilinn Háskóla Íslands.“
Hér að neðan er myndin sem Ögmundur birti: