Meðfylgjandi mynd var tekin við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg og birti Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Bandalags háskólamanna og fyrrverandi umhverfisráðherra, hana á Facebook-síðu sinni.
Eins og landsmenn vita hefur talsvert verið fjallað um nýja stjórnarskrá undanfarin misseri. Þannig framkvæmdu ungir aktívistar borgaralega óhlýðni um helgina þegar þeir gröffuðu „Hvar er nýja stjórnarskráin?“ á götur út um allt land til að minna á spurninguna.
Myndin hér að neðan sýnir þó allt aðra og ótengda spurningu sem virðist þó vera innblásin af af herferð þeirra sem kallað hafa eftir nýrri stjórnarskrá, á vegginn er nefnilega búið að spreyja: „Hvar er nýja símaskráin?“.
Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör en þess má geta að síðasta símaskráin í prentuðu eintaki kom út hér á landi árið 2016.