Mynd dagsins: „Hvaða fá­sinna er það að klastra öll strætó­skilti út með enska slag­orðinu“

Mynd dagsins: „Hvaða fá­sinna er það að klastra öll strætó­skilti út með enska slag­orðinu“

Nýja aug­lýsinga­her­ferðin frá ís­lensku hafra­mjólkinni Oatly hefur heldur betur vakið hörð við­brögð þar sem fyrir­tækið á­kvað að hafa aug­lýsinga­her­ferðina á ensku.

Björk Eiðs­dóttir, rit­stjóri helgar­blaðs Frétta­blaðsins, vakti at­hygli á málinu upp­haf­lega og hafa margir tekið boltann síðan þá.

Ei­ríkur Rögn­valds­son, prófessor emeritus í ís­lenskri mál­fræði, segir þetta vera brot á lögum.

„Aug­lýsingar eiga að vera á ís­lensku! Það er á­stæðu­laust og raunar bannað með lögum að birta aug­lýsingar á ensku þegar mark­hópurinn er aug­ljós­lega ís­lenskur að mestum hluta. Björk Eiðs­dóttir vakti at­hygli á þessu og samdi frá­bært ís­lenskt slag­orð í staðinn fyrir enskuna,“ skrifar Ei­ríkur í hópinn Mál­spjall.

Al­manna­tengillinn Karen Kjartans­dóttir veltir fyrir sér hvernig það er hægt að klúðra þessu þar sem ís­lenska slag­orðið er mun betra: „Eins og mjólk en gerð fyrir fólk“

„Hvaða fá­sinna er það að klastra öll strætó­skilti út með enska slag­orðinu sem er svo miklu slappara en ís­lenska þýðingin, sem hrein­lega blasir við. Þakka Björk Eiðs­dóttur fyrir að vekja at­hygli á þessu og ætla að vona að heild­salinn Inn­nes stökkvi til færi þetta til betri vegar,“ skrifar