Mynd dagsins: Hundur Guðmundar braust út úr búrinu sínu – Svona var aðkoman

Guðmundur Jörundsson fatahönnuður skellti sér í klippingu í gær. Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir það að hundurinn hans gerði sig sekan um prakkarastrik meðan Guðmundur var að heiman.

Guðmundur þykir með þeim skemmtilegri á Twitter og birtir hann færslu um atvikið þar.

„Þessi hálfviti braust útúr búrinu sínu í gær meðan ég var í klippingu. Þegar eg kom heim var hann búinn að brjótast fram á gang, fara uppá efri hæðina inn til nágrannana og skíta á gólfið hjá þeim,“ segir hann.

Meðfylgjandi eru svo myndir af prakkaranum, sem virtist ekki skammast sín mikið, og aðkomunni eftir að heim var komið.