Auglýst hefur verið eftir eiganda þúsund króna seðils sem fannst í miðbæ Reykjavíkur. Sigurrós nokkur auglýsir eftir eigandanum í hóp Tapað/Fundið fyrir höfuðborgarsvæðisins á Facebook.
Sigurrós segir að seðillinn hafi fundist á stíg milli Grettisgötu og Laugavegs, mögulega sé um að ræða vasapening.

Auglýsingin hefur vakið nokkra athygli þar sem heiðarleikinn þarf til að vera í öndvegi ef finna réttan eiganda. Ekki er einu sinni hægt að biðja um raðnúmerið, ef svo ólíklega vill til að eigandinn hafi skráð það niður, því það er á myndinni.
Sigurrós á þó mikið hrós skilið að stinga honum ekki bara í vasann. Kristrún nokkur segir um málið á Twitter: „Hún er fundin, heiðarlegasta manneskja í heimi“