Hugi Halldórsson, fyrrverandi hlaðvarpsþáttastjórnandi og sjónvarpsmaður, birti afar áhugaverða mynd á Twitter um helgina.
„Hef heyrt að tærnar mínar séu ekki top 10 en í dag fékk ég blauta tusku. Ljótustu tær ever, full gróft finnst mér,“ segir Hugi og birtir meðfylgjandi mynd:
Hef heyrt að tærnar mínar séu ekki top 10 en í dag fékk ég blauta tusku. Ljótustu tær ever, full gróft finnst mér pic.twitter.com/DT6g2nRZ9U
— Hugi Halldórsson (@hugihall) December 4, 2021
Tær verða seint taldar til þess fegursta við mannslíkamann og virðast margir vera sammála þeim sem lét Huga fá „blauta tusku“ á dögunum.
„Takk fyrir þessa mynd Húgíman,“ segir vinur Huga, einkaþjálfarinn og þúsundþjalasmiðurinn Egill Einarsson. „Taldi þrisvar til að fullvissa mig um að þetta væru bara fimm tær,“ segir í annarri athugasemd og þá spyr þá þriðji einfaldlega: „Hvað kom fyrir?“